20.04.2008 20:58
Halló !!!!!!!!!
Já í dag fórum við Þórður í Rauðalæk. Þar var ein kind að bera. Hún var hvít kollótt og Oggi á hana. Spáin mín var ekki rétt. Ég hélt að Sigurjóns kind mundi bera á undan. En hvað um það. Hún átti hvíta gimbur. Þá eru fæddar tvær gimbrar. Ég setti inn myndir af þessum lömbum, og allt var eðlilegt þegar ég var að setja þær inn, en þær birtast ekki. Það getur verið að þær séu lengi að fara í gegnum kerfið. Sjáum til á morgun.
Við Þórður fórum svo í Lyngbrekku og bárum á sólpallinn. Ég lá ekki í leti í þetta sinn.
Molinn kveður.