24.04.2008 21:59
Halló!!!!
Jæja hér hefur allt gengið vel með Sigga Tuma. Hann vaknaði kl. 7:30 í morgun. Við fórum í Goðanesið og þvoðum báða bílana. Við fórum svo í sveitina og líka í Lyngbrekku. Helga Dóra, Ólína Sif og Hlynur Freyr komu í smá heimsókn í Lyngbrekku.
Það er komið lamb no. þrjú. Birta no. 26 var að bera og hún átti sv. flekkóttan hrút. Þá er mættur á svæðið lambakóngur. Haukur Haralds á hann.
Við erum búin að vera úti í allan dag, og þá meina ég allan dag. Siggi var orðinn mjög þreyttur. Hann fór svo í bað eftir langan dag og var sofnaður kl. 20.
Molinn kveður.