27.06.2008 20:48
Halló !!!!
Jæja nú er allt að verða klárt í Lyngbrekku fyrir pottinn. Þórður ætlar að láta renna í hann á morgun, og þá er hægt að vígja hann á sunnudaginn. Þórður er búinn að vera að vinna þar nær alla vikuna, já og líka í Goðanesi. Oggi kom í rafmagnslögn. Það verður að vera rafmagn fyrir pottinn. Ég sótti Sigga Tuma í leikskólann kl. 16. Hann verður hjá okkur um helgina. Við fórum svo í Lyngbrekku til Þórðar sem var búinn að vera þar í allan dag. Ég tók myndir af framkvæmdunum og þið getið skoðað þær í möppu sem heitir 27-29 júní. Ég set nú líklegast vígslu myndir inn í það albúm á sunnudaginn. Þið getið fylgst með hér. Hverjir ætla að mæta í vígslupartýið, eru það einhverjir. Vinsamlegast látið mig vita hér í commenti.
Molinn kveður.