02.08.2008 08:53
Já góðan dag !!!
Jæja nú fer góða fríinu mínu að ljúka. Ég fer að vinna á þriðjudaginn. Júlli fer á morgun og Siggi á mánudaginn. Það er búið að ganga mjög vel með þá gutta. Við höfum aðalega verið í Lyngbrekku með þá, og líka skotist í sveitina. Þeir eru sjúkir í pottinn og hafa fengið að vera mikið í honum. Ég setti inn tvö myndbönd af þeim og Tristani í pottinum í gær. Þeir vilja stundum láta sprauta á sig vatni þegar þeir eru í pottinum. Finnst það mjög gaman. Siggi sagði að vísu í fyrsta skiptið þegar ég sprautaði á þá: EKKI BLEYTA MIG. Ég setti líka inn nokkrar burslumyndir af þeim. En eins og ég sagði þá er búið að ganga mjög vel.
Molinn kveður.