22.10.2008 21:19
Halló !!!!
Jæja nú er ég búin að setja inn myndir af lömbunum sem verða í Rauðalæk í vetur. Það vantar að vísu 2 gimbrar, sem á eftir að ná í, í Búðanes. Það verða semsagt 24 veturgamlar, 30 gemlingar og 3 hrútar, semsagt 57 hausar á húsi. Það verður nú gaman.
Bíllinn minn fór aftur á verkstæði í dag. Það þurfti að skipta um stuðarann, því ég lenti í því fyrir stuttu að það rann bíll á bílinn minn. Þetta var fyrir utan Blómaval. Það kom kona á flottum jeppa og lagði bílnum í stæðið fjær húsinu, en minn var við húsið. Hún var svo upptekin að tala í símann að hún gleymdi að setja bílinn í parkið, þannig að hann rann. Það er ekki hægt að gera tvent í einu.
Molinn kveður.