30.11.2008 20:24
Hæ öll !!!
Jæja við Þórður vorum að skreyta í Lyngbrekku. Við settum jólaseríu á skúrinn, húsið og flaggstöngina og svo settum við upp jólatré í brekkuna. Þegar þið keyrið framhjá Lyngbrekku þá sjáið þið bæði tréð og flaggstöngina. Þetta er voða flott. Eeeennnn kuldinn úti. Það var svo kalt að ég held að ég sé ekki með neinar tær eftir þetta, en ég er að reyna að hita þær upp og vona að þær haldist á mér. En horfið þið uppeftir þegar þið keyrið framhjá.
Molinn kveður.