28.12.2008 21:58
Jæja halló !!!
Nú er alvaran að taka við, já já það er sko vinna á morgun. Ég sem er búin að vera í fríi síðan 12. des. þvílík sæla búin að vera á mér.
Jæja aðfangadagur búinn og tilheyrandi jólaboð. Maður er sko bara búinn að vera að borða og borða og liggja í leti. En nú fer hjólið að ganga sinn vana gang.
Við vorum í jólaboði í dag hjá Rikka og Addý í Ólafsfirði. Það var í Höllinni, og þvílíkar kræsingar á borðum þar. Við vorum líka í jólaboði 25. des. hjá Siggu og Hauk í Mýrarvegi og líka voru kræsingar þar á borðum.
Guðrún Helga kom 22. des. og var hjá okkur þangað til á jóladag 25. Við skutluðum henni á Borðeyri þar sem Nonni beið eftir henni. Við lögðum af stað um kl. 18:30 og vorum komin þangað um kl. 21. Það var tekið vel á móti okkur þar af foreldrum Nonna. Við stoppuðum ca. 1 og 1/2 tíma þar og héldum svo heim. Við vorum komin heim um kl. 00:45
Friðrik og Yumiko eru líka hér fyrir norðan. Þau komu 23. des og þau fara 30. aftur suður.
Ég setti inn þrjú ný albúm.
Molinn kveður.