Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 335
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 2322
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 911780
Samtals gestir: 48100
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:27:51

26.04.2009 22:51

Sauðburður byrjaður

Halló !!!

Jæja nú er sauðburður hafinn í Neðri-Rauðalæk. Það eru 4 ær bornar 8 lömbum. Það verður frekar erfitt að fara í vinnuna á morgun og fara ekki í sveitina fyrr en vinnan er búin. En svo er ég komin í frí eftir morgundaginn, og get verið á staðnum þegar allt er í gangi. 

Það rifjast nú upp hjá mér sauðburður 1975 þegar ég var 12 að verða 13 ára og bjó á Molastöðum. Þá veiktist ég, fékk botlangakast og var flutt á sjúkrahúsið á Sigló. Þar var ég skorin upp og varð að vera á sjúkrahúsinu í 10 daga. 10 erfiða daga, því það var sauðburður í fullum gangi heima. Mamma og pabbi hringdu af og til og sögðu mér fréttir um það hverjar væru bornar. Þegar ég svo útskrifaðist af sjúkrahúsinu, þá sagði læknirinn að ég mætti ekki reyna á mig í nokkra daga, en fór ég eftir því ??? nei ég gerði það ekki. Ég byrjaði á því að fara upp í fjárhús og kíkja á kindurnar. Það var gemlingur að bera. Ég held að bara af því að læknirinn sagði að ég mætti ekki reyna á mig, þá tók ég gemlinginn, þegar hann var borinn, og hélt á honum yfir í spil og setti lambið hjá honum. En þetta er svo fast í minningunni minni, að geta ekki verið viðstödd allan sauðburðinn.

Guðrún Helga og Dagur Árni koma á morgun til að vera í sauðburði.

Var að setja inn myndir af deginum í dag, en það er áreiðanlega eitthvað bilað, því myndirnar eru ekki komnar inn. Sjáum hvað setur.

Molinn kveður.


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

6 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

8 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

6 daga

Tenglar