09.08.2009 19:36
Hæ !
Jæja nú er góð helgi að verða búin. Við fórum ekkert á Dalvík, en vorum þess í stað hér í Lyngbrekku. Oooohhhh bara gott.
Guðrún og Nonni komu í heimsókn. Þau komu í gær og fóru í dag aftur suður.
Við tókum okkur rúnt í gær, til að athuga um kindurnar í fjallinu. Við sáum Gilitrutt með gimbrina sína, Frostrós og Hélu, Þulu og Flekka, Hnyðju, og Bryðju og gimbrina hennar. Þær voru langt frá, en við sáum þær í kíki. Við fórum svo aftur í dag, og sáum Hnyðju, Bryðju og lambið hennar, Þulu og Flekka, og Frostrós og Hélu. Þau voru svo nálægt að ég gat tekið myndir af þeim. Ég setti inn myndir.
Helgi minn, takk fyrir að opna hliðið. Erum búin að keyra tvisvar sinnum veginn á enda, og eigum eftir að fara nokkrar ferðir í viðbót.
Það verður gaman í haust þegar féð kemur af fjalli.
Molinn kveður.