Hæ, hæ!!
Jæja fyrsta nóttin búin, og þvílíkur sársauki sem henni fylgdi. Aðeins meiri en þegar þetta var sem verst hjá mér áður en ég fór í aðgerðina. Verð bara að bíta á jaxlinn. Ég skil núna af hverju ég gat ekki farið í vinnu í dag, og get ekki næstu vikur.
Við erum að fara í svaka veislu í kvöld til Hafsteins og Fanneyjar. Villibráða með öllu tilheyrandi. Spennandi. Ég held að við verðum ÖLL systkynin samankomin. Þetta verður gaman.
Ég er búin að kveikja á kerti til minningar um svilkonu mína, hana Möggu. Það er ár í dag síðan hún kvaddi okkur. Blessuð sé minning hennar.
Molinn kveður.