18.08.2010 21:34
Hæ, hæ !
Jæja nú er kominn 18 ágúst. Það fer að koma haust. Við Þórður fengum ekki jörðina sem við vorum að spá í að kaupa. Þannig að nú vantar okkur hús fyrir kindurnar okkar. Við verðum ekki með kindurnar á Rauðalæk. Við fórum á stúfana og fengum leigðan bragga hjá Sverri á Djúpárbakka. Við þurfum að smíða aðeins fyrir þær þar, og ætlum að hefjast handa næstu helgi. Þetta verður spennandi held ég. Ég tek myndir og set þær inn jafnóðum vona ég.
Ég er ekki að vinna þessa viku og næstu. Ég er ekki nógu góð í hnénu. Get nákvæmlega EKKERT gert. Verð að hlífa mér svo þetta lagist einhverntímann.
Við fórum í villibráðaveislu til Hafsteins og Fanneyjar síðasta laugardag. Þetta var alveg rosalega fínt kvöld, og góður matur. Ég setti inn myndir af kvöldinu. Og svo eru nokkrar myndir af kindunum í fjallinu sem ég er búin að geta gefið brauð.
Molinn kveður.