Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 164
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 512
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 914689
Samtals gestir: 48297
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 07:55:46

16.01.2011 19:50

Góð helgi að baki

Halló hér !
Jæja nú er helgin alveg að verða búin. Guðrún Helga kom til okkar, á miðvikudagskvöld, og fór aftur í dag. Það var mjög gaman að fá hana í heimsókn. emoticon
Við erum búin að dunda okkur  í sveitinni um helgina. Við vorum að snyrta klaufir á öllum gimbrunum, og hrútunum, en eigum eftir að klippa klaufirnar á fullorðna fénu. Við ætlum að gera það, um næstu helgi. Þórður ákvað að gæla aðeins við Spaða, og gaf honum vatnsnudd. Hann þvoði hornin og andlitið á honum. Ha, ha.
Það er alveg hreint geggjað að fara þangað og dunda sér eitthvað, tíminn er alltof fljótur að líða þegar maður er þar. Ég bakaði vöfflur í mjólkurhúsinu, í gær. Kaffi, kakó, vöfflur og rjómi og fl. alveg hreint frábært.
Siggi og Júlli voru hjá okkur um helgina. Þeim finnst líka gaman að vera í sveitinni.
Við ætlum að láta telja í kindunum, í febrúar. Það verður gaman að fá að vita um frjósemina hjá þeim.
Það er sauðburður eftir 3 mán. og 7 daga. Ég bíð mjög spennt emoticon

Molinn kveður.


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

10 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

12 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

10 daga

Tenglar