Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 690
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 611
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 915826
Samtals gestir: 48360
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 13:31:21

05.10.2011 20:12

Algjört áfall

Það munaði ekki miklu, að ein kindin okkar dræpist í dag. Það var hún Freyja. Helgi á Bægisá kom henni til bjargar. Hún var afvelta, og hrafnarnir komnir í hana, en ekki búnir að gera gat. Bara búnir að særa hana þannig að úr blæddi. Takk fyrir, Helgi, að bjarga henni  emoticon
Ég fór eftir vinnu, til að kíkja á féð. Ég gaf þeim brauð. Freyja var í ágætu standi. Alveg búin að jafna sig eftir veltuna. En ég fékk frekar mikið áfall þegar ég sá hana Tabbý. Hún var bara með tvær gimbrar. Ég var alveg búin að ákveða að sú þriðja lægi einhverstaðar dauð. Ég leitaði talsvert að henni. Tabbý var frekar norðanlega í hólfinu. Ég labbaði svo talsvert suðureftir hólfinu, og sá þriðju gimbrina þar. Ég held að hún sé búin að venja sig undan Tabbý. Mér varð frekar létt, og ánægð að sjá hana á lífi.
Nú styttist í það að ég fái litla gullið hingað norður. Ég held að Guðrún komi með hann aðra helgi. Mikið hlakka ég til emoticon  Hann er alltof langt í burtu emoticon

Molinn kveður.




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

11 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

13 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

11 daga

Tenglar