12.03.2012 20:48
Við sprautuðum gemlingana í dag gegn
lambablóðsótt. Svo svona þremur vikum fyrir burð þarf að sprauta þá
aftur, og þá líka þær fullorðnu. Svo fá þær líka allar selen sprautu með
seinni sprautunni.
Guðrún og Einar Breki komu ekki hingað í dag. Litli stubburinn er orðinn veikur.
Ég fer hinsvegar suður á morgun til þeirra. Það var verið að kalla mig
til læknis í Orkuhúsinu, á miðvikudaginn, út af öxlinni. Já nú er
boltinn farinn að rúlla hjá mér. ÞAÐ Á LOKSINS AÐ FARA AÐ GERA EITTHVAÐ.
Miklu fargi er af mér létt. Ég á að fara í myndatöku og skoðun. Það er
allavegana byrjunin. Svo veit ég ekkert hvað verður. Ég er ekki búin að ákveða hvenær ég kem
norður aftur, en líklegast verður það á fimmtudaginn. Að vísu fer það
allt eftir því hvort það verður gert eitthvað meira.
Fjórði tíminn í sauðfjárræktarskólanum er á miðvikudaginn, þá verð ég
fyrir sunnan, en ég fæ að fara á morgun í Ýdali, svo ég missi ekki af
neinu. Það verður farið í :
a) Fóðurkostnaður,
fóðuröflun og fóðurgæði, greining á kostnaðarþáttum.
b) Undirbúningur
vorsins, áburðardreifing, sáningar í tún og grænfóður. Skipulagning vor
og haustbeitar.
c) Fyrirhyggja
sauðburðar, Flokkun áa, bólusetning og lyfjagjöf. Vinnuskipulag á sauðburði.
Það verður gaman að fara þarna austur. Ég þarf að vera mætt þar kl. 13 og vera svo mætt í flug kl. 19:25. Þetta sleppur vel.
Molinn kveður.