Ég á svo ótrúlega flotta tengdamömmu. Hún er svo mikill snillingur í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Hún gaf Þórði þetta í jólagjöf. Hún skar þetta út sjálf. Þetta er náttúrulega bara snilld hjá henni.
Alveg rosalega flott.
Hún gaf mér þessa vettlinga í jólagjöf. Þeir eru rosalega flottir. Nafnið mitt er meirisegja á þeim. Algjör snillingur.
Hér eru Snati og Týri í afslöppun. Þeir eru góðir vinir. Fimm mínútum seinna voru þeir í stuði og ólmuðust í góðu.
Það er aðeins tekið á því
Gannislagur
Týri varð einni tönn fátækari í þessum áflogum. Hann er að fella tennur og fá fullorðins. Hann verður 6 mánaða í lok janúar. Já og Snati litli 4 mánaða líka í lok janúar.
Sá litli lætur Týra ekki vaða yfir sig. En þetta er bara leikur hjá þeim.
Það sést kannski ekki mikið hvað þetta er, en þetta eru fang- og burðardagar á kindunum. Þetta blað er komið upp á eldhúsvegg hjá mér.
Molinn kveður.