Eins og ég skrifaði í bloggi 27. des.´13, þá sæddi Þórður 12 kindur. Tvær hafa gengið upp eins og við vorum búin að sjá, en hinar 10 hafa haldið. Þeir hrútar, sem urðu fyrir valinu voru :11-908 Garri
10-875 Snævar
09-892 Dolli
09-861 Dalur
Garri var með þrjár, tvær gengu upp og ein tveggjavetra og eldri hélt og er með tvö
Snævar er með tvær, báðar tveggjavetra og eldri. Önnur er með eitt, en hin með tvö
Dolli er með fjórar, einn gemsa sem er með tvö, tvær veturgamlar, önnur með eitt, en hin með tvö. Svo er ein tveggjavetra og eldri með tvö
Dalur er með þrjár, allt gemsar. Tvær með eitt og ein með tvö
Þá er von á 16 lömbum úr sæðingunum.
Garri með 2
Snævar með 3
Dolli með 7
Dalur með 4
Molinn kveður.