Loksins náði ég að góma ugluna á mynd, sem ég er nokkuð sátt við.Hún er búin að vera í nokkra daga og rústar öllu fuglalífi hér.
Huginn er kominn með gleraugu og sér veröldina í nýju ljósi. Hann er mjög duglegur að vera með mér úti. Við förum nokkra göngutúra á dag til að gæta að fénu.
Hér er Ponsa með kónginn og drottninguna. Þau eru orðin tveggja mánaða. Mér sýnist að þau komist varla orðið undir hana til að fá sér sopa. Þau verða orðin mjög stór í haust, þegar þau koma af fjalli.
Kóngurinn. Orðinn svo stór. Hann er með afskaplega ljót horn greyið. Enda blanda af kollóttu og hyrndu.
Fjórir guttar þessa helgi Siggi Tumi kominn til að vera í sumardvöl í eina til tvær vikur.
Aron og Bjössi sem verða bara helgina, og svo fallega krúttið mitt hann Huginn, sem er sofandi í vagninum. Það gengur alveg super vel með þessa gaura.
Nokkrar myndir fóru í albúmið.
Molinn kveður