Jæja, þá er nú spennufall hjá mér. Það var verið að telja í gær, 17. febrúar. Útkoman er þokkaleg, en þó of margar einlembdar af fullorðnu ánum.
Gemsarnir eru 56
2 eru geldir
35 með 1
19 með 2
samtals 73 fóstur
Veturgamlar eru 37
12 með 1
25 með 2
samtals 62 fóstur
Tveggjavetra og eldri eru 136
2 eru geldar
21 með 1
93 með 2
20 með 3
samtals 267 fóstur
Alls eru þetta 402 fóstur
Þórður sæddi 11 ær, 8 héldu af þeim:
7 ær með Þoku Hrein, og 5 héldu
þrjár með 1, tvær með 2
Samtals verða 7 lömb undan Þoku Hrein
4 ær með Garra, og 3 héldu
ein með 1, ein með 2 og ein með 3
Samtals verða 6 lömb undan Garra
Molinn kveður