Ég byrjaði sauðburðarvaktina í gær. Svaf í fjárhúsunum í nótt. Fyrsta nóttin af 40 til 50 nóttum.
Þessir tveir voru frekar spenntir í gærkvöld, þegar ég var að fara upp í fjárhús á vaktina. Ég held að þeir hafi vitað hvað stóð til. Í fyrra fengu þeir að sofa hjá mér í fjárhúsunum og einnig fá þeir það núna. Það er fínt að hafa tvo sem passa upp á mann
Og sauðburður er hafinn. Ponsa bar tveimur hvítum gimbrum í dag. Hún bar líka fyrst í fyrra. Fyrri gimbrin kom afturábak. Pínu erfitt að ná henni, en það tókst. Ég hélt að hún mundi ekki lifa þetta af, en hún er mjög spræk. Var meirisegja á undan systur sinni á spena.
Ponsa með gimbrarnar sínar. Þær eru undan Ebita félagshrút. Hún átti tal 17. apríl.
Hversu krúttlegt er þetta ????
Ég hef trú á að Gríma beri líka í dag. Hún á líka tal 17. apríl.
Þessi skotta, Emilía Dís, kom í heimsókn í fjárhúsin um helgina. Hún var sko ekki hrædd við dýrin í sveitinni. Fannst bara mjög gaman.
Ég setti inn nokkrar myndir.
Molinn kveður