Það gengur vel með myndatökuna á lömbunum, 29 lömb eftir af 367
Hér eru nokkrar myndir sem ég hef tekið á myndarúntinum mínum
Þrjár systur, undan Slenju
Örvar, Greifi og Bæsi
Bekri, Drýsill, Geir og sauðurinn Baukur
Bekri, Drýsill og Geir
Kindurnar eru komnar á fjárhústúnið. Nú er stutt fyrir lömbin að koma í heimsókn í garðinn okkar
Þær eru alveg við stofugluggann
Já og horfa bara inn í stofu
Drottning er lamblaus. Hún var geld. Það er samt spurning hvort hún beri 27. júlí, því Greifi slapp til hennar 5. mars
Kindurnar þurfa að keppast við þessa um grasið
Flottir fuglar
Það eru þrír gemsar lamblausir. Tveir voru geldir og einn lét.
Við erum búin að venja 35 lömb undir. Það er engin þrílemba með þrjú og aðeins tveir gemsar með tvö. Algjör snilld að geta vanið svona undir.
Enn á ein eftir að bera.
Flottur fugl, Maríuerla
Molinn kveður