Skíðaskólinn í dag, dagur tvö. Ég tók nokkrar myndir og þær eru hér, að ofan, í myndaalbúminu. Ég varð að setja myndirnar í tvö albúm. Þau eru með sömu dagsetningu.
Veðrið var mjög gott
Þórður snillingur var að smíða, fyrir lambamerkin. Hann dreymdi hvernig hann ætlaði að hafa þetta og auðvitað lék það í höndunum á honum að búa til spjald til að geta raðað merkjunum í. Það komast eitthvað á annað hundrað merki í þetta
Merkin koma svona, límd saman með sterku límbandi. Þegar við erum að nota þau, (marka lömbin), þá flækist límbandið og merkin annaðhvort detta af eða flækjast saman, þannig að það er erfitt að finna þau
Svona eru merkin sett í þetta
Þetta er algjör snilld
Alltaf er nú sérstakt þegar maður grillar í fyrsta skiptið á árinu. Já ég grillaði og þvílíkt sem þetta var góð máltíð. Ég læt nú ekki líða langan tíma þar til ég grilla næst
Molinn kveður