Þeir bræður girtu, um síðustu helgi, þarna, þannig að kindurnar geti fengið góða beit
Þessir gullmolar eru búnir að vera hjá okkur, 6 nætur og eiga eftir að vera 3 í viðbót. Þeir eru búnir að sofa hjá mér í fjárhúsunum nánast allan tíman
Ég er búin að sofa í fjárhúsunum 35 nætur. Núna eru 3 gemlingar og 3 ær eftir að bera. Ég ætla að sofa heima í nótt, því þær bera ekki fyrr en eftir nokkra daga. Það verður ljúft
17-321 Muldra með gimbur undan 17-581 Pits
14-184 Dyrgja með tvær gimbrar undan 16-152 Hrók
Hrútur undan 14-138 Immý og 17-103 Dranga
Hrútur undan 14-182 Elý og 13-982 Móra
Hrútar undan 15-217 Kötu og 12-980 Lampa
14-151 Tætla með hrúta undan 17-588 Varíusi
11-047 Brá með hrút undan 16-995 Fáfni, svo er hún með gimbur undan 15-195 Hörpu og 16-152 Hrók
Hrútar undan 10-032 Ponsu og 16-152 Hrók
Gimbrar undan 10-021 Sælu og 16-152 Hrók
Í gær (22. maí) fæddust 9 lömb, 3 hrútar og 6 gimbrar
Á lífi, 539 lömb, 264 hrútar og 275 gimbrar
Molinn kveður