Fórum í smá göngutúr í morgun, aðalega til að athuga um hrútana sem eru í fjallshólfinu. Við fundum einn dauðan og annan slasaðan sem þurfti að aflífa
Við fundum þennan dauðan. Þetta er 17-583 Laggi, faðir 16-577 Ári og móðir 15-240 Nös. Hann er búinn að vera veikur í lungunum síðan seinni parts vetrar. Við vorum búin að meðhöndla hann með lyfjum þónokkuð mikið. Hann greinilega hafði ekki sumarið af
Þennan fundum við svona slasaðan. Við vitum ekki hvað kom fyrir hann, en hann var svona rifinn í andlitinu. Þetta er 15-579 Laxi, faðir 14-988 Tvistur og móðir 11-955 Nía. Hann var frá Ingva Guðmundssyni, Hríshóli, Eyjafjarðarsveit. Það þurfti að aflífa hann. Þannig að við erum búin að missa tvo hrúta núna. Eftir eru 10 hrútar. Ég þarf að fara og mynda þá við tækifærið
Búið að setja hitalögnina niður og flota. Ég held að það eigi að flísaleggja á morgun
Molinn kveður