Systkinin kúra saman. Nú er búið að taka stærra lambið og venja það undir aðra kind. Þessi litli stubbur nær að sjúga mömmu sína. Ég hélt að hann kæmist ekki á spena, því hann er svo lítill, en það er hinn mesti misskilningur
Það var snúið upp á legið á þessari og var sett í keisara. Lambið dautt fyrir nokkrum dögum og þessi litli moli settur undir hana. Hún tók hann strax að sér og hugsar vel um hann
Veðrið á laugardaginn var svo gott að það var hægt að prjóna úti. Það er búið að vera gott í marga daga. Alveg yndislegt að fá svona veður
Þeir vinirnir Alexander og Haukur Nói dunduðu sér lengi saman
Og meiri segja var tími fyrir sólbað
Þessir fuglar fara verulega mikið í taugarnar á mér. Máfar sem eru í stórum hópum hér á túnunum. Ef ég ætla að fljúga drónanum, þá flykkjast þeir að honum og ætla að gera árás á hann. Ég þori ekki að fljúga honum meðan þeir eru hér
Veðurstöðin á Möðruvöllum er biluð
Molinn kveður