Ég verð að hæla þeim bræðrum fyrir sauðburðaraðstöðuna í ár. Þetta hefur aldrei verið svona þægilegt
Hér eru settar inn 15 ær, sem næstar eiga tal
Spjaldið sem þær eru lokaðar af þegar þær eru bornar
Hér sést vel hvernig þetta virkar. Þessi svarta til vinstri bar fyrst af þessum 15, svo koll af kolli. Lengst til hægri eru óbornu ærnar. Þegar þær eru allar bornar, þá eru þær settar upp í refaskála og nýr hópur settur upp. Það þarf ekki einusinni að brynna í fötum eins og síðustu ár. Nú er vatnsrör sem þær drekka úr. Þórður og Simmi eru snillingar
Svo er pláss fyrir 10 kindur þarna og það þarf ekki að brynna í fötum. Það er vatnsrör líka. ÆÐISLEGT
Það fengu nokkrar að fara út í dag. Þær voru svo settar aftur inn þegar líða tók á kvöld
Drottning þykist vera yfir aðra hafin. Hún er tignarleg
128 lömb á lífi
Molinn kveður