Þeir bræður eru byrjaðir að undirbúa sauðburð. Það verða rúmlega 30 einstaklingsstíur í hlöðunni
Við strákarnir vorum að taka til og þrífa í hjólhýsinu. Það verður klárt gistihús fyrir 22. apríl, en þá ætlum við að gista fyrstu nóttina
Í tilefni þess að það var fyrsti í kaffi í hjólhýsinu í dag, þá bökuðum við vöfflur
Báðir strákarnir sögðu að þetta væri allra besti kaffitími í langan tíma. Þeir voru ánægðir
Molinn kveður