Að bíða eftir rútunni fyrsta skóladaginn. Alltaf gott þegar skólinn byrjar og fá rútínu og eins er það gott þegar skólanum líkur að vori
Mikið var nú gott að fara EIN niður á engi og ganga frá endunum á heyrúllunum. Kyrrðin og þögnin var kærkomin hahaha
Gott veður í dag
Nú eru framkvæmdir byrjaðar aftur. Halli kom í dag og tók striga af veggjunum í forstofunni. Það þarf svo að heilsparsla þá áður en ég mála. Við ætlum að skipta um hurðir í öllu húsinu og klæða upp í stofuloftið. Þá er nú þessari stóru framkvæmd lokið
Molinn kveður