Við sprautuðum allt féð í dag, seinni sprautuna gegn lambablóðsótt og sprautuðum líka ærnar, sem eiga að bera, með seleni
18-411 Túbba bar í gær, okkur öllum að óvörum, því við héldum að hún mundi ekki bera fyrr en 28. apríl. Hún er ein þeirra þriggja sem heimtust í desember. Hún átti hvíta gimbur og svartan hrút. Það var enginn við þegar hún bar
Gimbrarnar hennar Blöndu eru farnar að tæta í sig heyið. Þær stækka hratt
Ég bakaði vínarbrauð í gær
Gott að eiga í frysti um sauðburð
Þvílíkt lostæti
Rikki bróðir gaf okkur nokkur þorskflök. Þá er bara að gera fiskibollur
Ekkert smá magn
Það tók smá tíma að steikja þetta allt
Þetta er í annað sinn sem ég geri fiskibollur
168 vagumpakkaðar bollur. Við ætlum að borða bollur á morgun og vonandi verða þær eins góðar og síðast þegar ég gerði bollur. Það er gott að eiga í frysti þegar við verðum á fullu í sauðburði
Molinn kveður