Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn kæru síðuvinir
Duglegu vinnumennirnir okkar
Við settum allar kindurnar út í dag. Við vorum með gemlingana, fjórlemburnar, þrílemburnar og lambærnar í sér hólfum, svo þær rugluðust ekki saman við þær sem eru ekki flokkaðar. Þær voru úti í nokkra klukkutíma
Gemlingarnir fengu að fara út í réttina
Einlembur og tvílembur eru óflokkaðar í fjárhúsunum og fengu allar að fara suðurfyrir fjárhús
Þrílemburnar fengu fjárhúshólfið
Fjórlemburnar og nokkrar þrílembur já og lambærnar fengu rjómahólfið
Allt féð úti
Þessa mynd tók ég með drónanum
Forystuærnar röðuðu sér upp fyrir mig. Frekar óskýr mynd. Tekin á símann og langt frá
Geldféð
Möðruvellir 3, 4 og 5
Simmi að slóðadraga
Nokkrar myndir af kindunum í útiveru
Þær höfðu það gott úti
Molinn kveður