Þessi ömmu gullmoli kom til að sjá lömbin. Hér heldur hann á lömbunum sínum. Hann á kind sem heitir Mús. Hann var stoltur af þeim
Við settum þessar lambær út í dag. Það tók smá stund fyrir þær að finna sín lömb. Þær æddu af stað í frelsið, en við náðum að standa fyrir þeim þar til þær voru búnar að finna þau
Lömb undan 17-347 Pytlu
Nú eru eftir á milli 50 og 60 ær. Þetta fer að róast. Það er búið að vera mjög mikið að gera í marga daga. Varla tími til að nærast