Betlehemskerti
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda í líking manns.
Sólveig kom norður til okkar 3. des. og ætlar að vera hjá okkur til 12. des. Gaman að fá hana Við fórum í Dagverðartungu í dag og fengum að velja okkur jólatré til að hafa úti
Sólveig gaf Þórði þetta kort í afmælisgjöf. Mjög flott hjá henni
Hún gaf honum þessa mynd, sem hún teiknaði eftir
Þessum myndum. Alveg svakalega flott hjá henni. Hún er svo mikil listakona
Molinn kveður