Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Today's page views: 1332
Today's unique visitors: 56
Yesterday's page views: 2322
Yesterday's unique visitors: 98
Total page views: 912777
Total unique visitors: 48132
Updated numbers: 20.4.2024 16:07:04

Blog records: 2010 N/A Blog|Month_11

29.11.2010 18:52

Jæja

Halló gott fólk !
Jæja langt er síðan síðast.
Hér eru að baki yndislegir dagar. Afmælisveisla hjá Þórði. Já hann Þórður er kominn á sjötugsaldurinn. Við vorum með smá veislu í vinnunni hans, fyrir vinnufélagana. Eitthvað um 20 manns. Svo var veisla hér heima, og það komu um 60 manns. Þannig að þetta var 80 manna veisla. Þetta var á þriðjudaginn 23. nóv. og tertur í boði.  Laugardaginn 27 var svo önnur veisla. Þá komu um 30 manns í mat. Þetta voru alveg hreint frábærir dagar. Við Þórður erum ánægð með þetta allt.
Ég fór í segulómmyndatöku, á hnénu, í morgun. Ég fæ vonandi að vita eitthvað um það á morgun eða á miðvikudaginn, hvort eitthvað sjáist á myndunum.
Ég er byrjuð í sjúkraþjálfun hjá Gunna Svanbergs. Ég vona bara að þetta fari að taka enda.
Ég er búin að fá frí í vinnunni frá 17. des. þangað til milli jóla og nýjárs.

Molinn kveður.

07.11.2010 22:03

Yndislegt líf

Jæja nú er þessi helgi að klárast. Ég held að það séu bara tveir dagar í viku, mánudagar og föstudagar. Tíminn líður svo hratt.
Veislan hans pabba, síðustu helgi, var alveg hreint frábær í alla staði. Ég setti inn myndir af því kvöldi.
Við erum búin að vera í sveitinni um helgina. Siggi og Júlli voru hjá okkur. Þórður var að klára að leggja rafmagnið, og svo setti hann hurð, sem er á milli fjárhússins og hlöðunnar. Þetta er allt að verða rosalega flott.
Gimbrarnar og lambhrútarnir voru sprautuð, garnaveikibólusetningu 4. nóv.
Kindurnar og hænurnar hafa það gott á Djúpárbakka.

Molinn kveður.
  • 1


clockhere

Name:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Cell phone:

820-7756

Birthday:

23. júlí, 1962

Address:

Möðruvellir 3

Location:

Hörgársveit

About:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

event has passed

12 year

7 months

6 days

Haukur Nói, kom í heiminn

event has passed

9 year

9 months

8 days

Birgitta Ósk, kom í heiminn

event has passed

2 year

3 months

6 days

Links