Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Today's page views: 1423
Today's unique visitors: 58
Yesterday's page views: 2322
Yesterday's unique visitors: 98
Total page views: 912868
Total unique visitors: 48134
Updated numbers: 20.4.2024 18:10:35

Blog records: 2016 N/A Blog|Month_4

27.04.2016 00:31

SAUÐBURÐUR

Þá er ég nú flutt í fjárhúsin. Ég byrjaði vaktina 23. apríl og fyrstu lömbin fæddust 24. emoticon 
Strákarnir fengu að sofa uppfrá og þeim fannst það mikið sport. Við vorum fjögur sem sváfum þar og það gekk mjög vel.


Þetta krútt fæddist í morgun. Þetta er grámórubotnótt eða grábotnótt gimbur. Hún er undan Mökk félagshrút og Fríð


Þessi fallega gimbur er undan Nagla og Dellu


Þau eru svo falleg þessi lömb emoticon


Góðir dagar framundan emoticon emoticon


Hluti af einstaklingsstíunum



Molinn kveður



19.04.2016 23:50

4-6 dagar

4-6 dagar í sauðburð emoticon


Það er nauðsynlegt að fá sér kaffisopa þegar við erum búnar að gefa morgungjöfina. Við Helga að skála í kaffi emoticon

Það er kominn hiti í hjólhýsið. Ég flyt þangað laugardaginn 23. apríl emoticon Það verður eins og alltaf, ég mun vakna á tveggjatíma fresti emoticon


Það var alveg kolbrjálað veður hér, 17. apríl. Það snjóaði þónokkuð. Vonandi síðasta hretið.



Molinn kveður


17.04.2016 20:31

6-8 dagar

6-8 dagar í sauðburð.


Það voru settar upp nokkrar einstaklingsstíur í dag.


Glæsilegt emoticon


Ég hélt að vorið væri komið, en það er frekar leiðinlegt veður núna. Snjókoma og frekar blint. Ég held að þetta sé síðasta hretið og vorið verði gott. Allavegana er það mín ósk

Kaffitíminn í dag, var í hjólhýsinu. Sá fyrsti á þessu ári þar. Alltaf gaman þegar við tökum hjólhýsið í notkun. Nú fer ég að setja hita á það og taka til í því, því ég ætla að byrja að vakta kindurnar næsta laugardag.



Molinn kveður



12.04.2016 22:19

11-13 dagar

11-13 dagar í sauðburð.


Sumar eru að verða ansi þungar á sér. Genta er alveg búin á því


Nokkrar þrílembur


Brák er með fjögur


Snoppa með svakalegan belg. Þrjú hjá henni


Gemlingar emoticon



Molinn kveður


11.04.2016 00:08

Seinni sprautan

Við sprautuðum allt féð með seleni, og seinni sprautuna gegn lambablóðsótt, 2. apríl.

Það styttist óðum í sauðburð. Ég þarf að bíða í 15 daga. 
Eftir 13 daga flyt ég í hjólhýsið góða og byrja að vakta kindurnar.

Þessir gullmolar eru búnir að vera hjá ömmu og afa, í rúman hálfan mánuð. Það var svo yndislegt að fá að hafa þá hjá okkur. Þeir eru miklir orkuboltar og voru duglegir að leika sér úti og í fjárhúsunum með ömmu. Söknuðurinn er mikill. 
Þegar þeir eru orðnir 5 ára þá koma þeir oft til ömmu og afa bara sjálfir í fylgd í flugvél. Einar Breki verður 5 ára í september emoticon 



Molinn kveður 



  • 1


clockhere

Name:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Cell phone:

820-7756

Birthday:

23. júlí, 1962

Address:

Möðruvellir 3

Location:

Hörgársveit

About:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

event has passed

12 year

7 months

6 days

Haukur Nói, kom í heiminn

event has passed

9 year

9 months

8 days

Birgitta Ósk, kom í heiminn

event has passed

2 year

3 months

6 days

Links