Flottur himininn í morgun. Möðruvellir 1 og 2. Það sést í kirkjuna þarna
Að standa upprétt, er orðin frekar algeng sjón í fjárhúsunum. Þeim er alltaf að fjölga sem standa svona, Ýmist að stela sér tuggu eða hafa yfirsýn yfir allt
Svo er ein sem opnar, til að komast í heyið
Við lokum görðunum meðan við gefum heyið. Það er ein kind sem er búin að læra að opna þetta til að geta fengið sér hey. Hér er hún búin að opna og hinar kindurnar njóta góðs af því með henni
Hér er hún að opna
Hér er hún búin að toga járnið upp, með tönnunum
Molinn kveður