Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Antal sidvisningar idag: 377
Antal unika besökare idag: 42
Antal sidvisningar igår: 528
Antal unika besökare igår: 42
Totalt antal sidvisningar: 914390
Antal unika besökare totalt: 48272
Uppdaterat antal: 23.4.2024 18:39:07

Blogghistorik: 2019 Länk

31.05.2019 20:42

Lömb og ær


Nonni litli kom til mín í dag og vildi klapp


Hér er hann með fósturmóður sinni


15-238 Rækja með hrút og gimbur undan 17-582 Marió


15-245 Mosa með hrúta undan 17-586 Nóa


15-231 Blika með tvær gimbrar og hrút undan 17-582 Marió


15-193 Hugljúf með hrúta undan 16-108 Bláma


Hér er verið að snyrta runnana emoticon


12-087 Slenja með hrút og gimbur undan 17-582 Marió. Hún var þrílembd og þriðja lambið sem var hrútur fór undir 12-320 Viktoríu


16-288 Jóney með hrút og gimbur undan 17-581 Pits


13-607 Padda með gimbrar undan 16-573 Skála


Hrútur og gimbur undan 15-205 Prúð og 17-586 Nóa


14-160 Della með hrút og gimbur undan 18-593 Hamri


16-266 Mulla með gimbur undan 17-371 Krissa og gimbur sem hún tók í fóstur, undan 12-072 Eyju og 17-371 Krissa


15-211 Seila með hrút og gimbur undan 18-591 Vita


12-070 Rán með gimbrar undan 17-371 Krissa


16-291 Rakel með hrúta undan 16-573 Skála

Enn eiga 2 eftir að bera. Þær eiga tal 2. júní. Ég er að vakta þær og sef í fjárhúsunum. Tók tvær nætur heima, en ætla að sofa í fjárhúsunum þangað til sauðburði lýkur





Molinn kveður


30.05.2019 21:07

Drónamyndir af Möðruvöllum


Loftmynd af Möðruvöllum. Tekið með drónanum


Og þessi líka


16-297 Táta með hrút og gimbur undan 16-108 Bláma


Hrútur og gimbur undan 15-206 Lælu og 18-559 Brodda


16-270 Sif með gimbrar undan 17-586 Nóa


Það er ekki flottur litur á þessu lambi. Þetta gula lamb er undan 17-368 Goltu og 18-591 Vita. Hitt lambið var vanið undir hana og er undan 14-143 Kiðu og 17-586 Nóa





Molinn kveður


29.05.2019 21:39

Skólaslit Þelamerkurskóla


Tilbúin á skólastlit Þelamerkurskóla


Alexander Örn lauk 1. bekk


Damian lauk 5. bekk


Og Sólveig lauk 7. bekk


Sólveig fékk framfararverðlaun Þelamerkurskóla







Molinn kveður


28.05.2019 14:14

Frekar kalt í dag


14-253 Krumma með hrúta undan 17-586 Nóa


Hrútar undan 16-290 Evu og 18-559 Brodda


Gimbrar undan 15-195 Hörpu og 18-593 Hamri


13-122 Strúna með tvo hrúta og gimbur undan 17-584 Báser
Þau eru öll jöfn og flott


14-144 Kista á kafi í grasi


10-031 Trilla með hrút og gimbur undan 17-581 Pits


15-240 Nös með tvær gimbrar og hrút undan 16-108 Bláma
Hrúturinn fæddist minnstur og er það enn


Starinn er svakalegur. Hann er með hreiður inni í fjárhúsum. Hann hermir eftir allskonar hljóðum. Eina nóttina heyrði ég hljóð sem líktist því þegar lamb er að fæðast og hóstar upp kari/slími. Það er svona "blautur" hósti. Ég leitaði í öllum króm að lambi sem var að fæðast, en fann ekkert. Þá heyrði ég hvaðan hljóðið kom. Það kom frá þessum fugli. Núna er mikið að gera hjá þeim að bera í ungana. Þeir hljóta að fara að fara úr hreiðrinu, því það er búið að heyrast lengi í þeim


Skógarþrestir eru með nokkur hreiður við fjárhúsin. Hér er einn þeirra


Lóan á vappi





Molinn kveður


27.05.2019 21:11

Lömbin stækka


Þilja með risann sem var rúm 7 kg. Gemlingslamb var vanið undir og dafna þau vel. Það er dálítill stærðarmunur á þeim


Við erum með saltsteina á nokkrum stöðum úti. Það er mikil ásókn í þá, bæði af fullorðnum og lömbum

Það bar ein í nótt. Það eru fjórar eftir og sú fyrsta af þeim á tal 31. maí. Ég ætla að sofa heima í nótt (búin að sofa samfellt 39 nætur í fjárhúsunum). Það verður skrítið að fá að sofa í alla nótt án þess að þurfa að vakna. Líklegast fæ ég að sofa tvær nætur heima, en svo verð ég að vakta þessar fjórar sem eftir eru. Ein á tal 31. maí, ein 1. júní og tvær 2. júní. Þá verður þetta búið emoticon





Molinn kveður


26.05.2019 20:06

Fljótin


Við tókum okkur rúnt í Fljótin, í dag. Veðrið var gott, og fallegt var í Fljótum eins og alltaf


Brúnastaðir


Ketilás og Nýrækt


Stífluvatn

Það var gaman að koma í Fljótin. Við komum við á Molastöðum og þar var tekið vel á móti okkur emoticon

Það báru tvær síðustu nótt. Þá eru eftir 5





Molinn kveður


25.05.2019 18:46

Sagan af honum Nonna litla


Þetta er hann Nonni litli, sem fæddist 26. apríl. Móðir hans var að láta, þar sem hann átti ekki að fæðast fyrr en 7. maí. Það vantaði 11 daga upp á fulla meðgöngu. Hann var nokkra daga hjá mér inni í hjólhýsinu. Ég gekk honum í móðurstað fyrstu dagana


Tveggja daga gamall og aðeins farinn að labba um og leika sér. Hann þurfti að sofa meira en önnur lömb, kannski vegna þess að það vantaði 11 daga upp á fulla meðgöngu hjá móður


Hann fékk fósturmóður 5. maí, þá 9 daga gamall


Hann fór út með henni og var hinn ánægðasti. Svo varð nú breyting á lífi hans. Fósturmóðir hans varð veik og það endaði með því að það þurfti að aflífa hana. Meðan hún var veik, gaf ég honum úr pela. Hann var mjög háður henni og fékk að vera hjá henni þótt hún væri veik


Sama dag (20.maí) og fósturmóðir hans var aflífuð, þá bar þessi kind, hún Lokka. Hún var einlembd og ég prufaði að skella honum undir hana. Það tókst svona glimrandi vel. Hann var líka sáttur með þessa nýju fósturmóður og fósturbróður. Nonni litli var orðinn 24 daga gamall þegar ég vandi hann undir


Þeir eru ánægðir með hvorn annan


Og þau eru öll ánægð. Í dag, fimm dögum seinna, fengu þau að fara út og allt gengur vel


Eins og ég sagði í bloggi í fyrradag (23. maí) þá sagðist ég ætla að fylgjast með því þegar það kæmu ungar hjá þessu álftarpari. Hún var á hreiðrinu í morgun, en núna um kvöldmat voru þau komin á stjá með ungana. Þau eru að fara niður að á með þá


Það hafa komið 5 ungar


Flott fjölskylda

Enn eru eftir 7 ær. Engin pása að sofa í fjárhúsunum og búin að sofa 37 nætur





Molinn kveður


24.05.2019 20:20

Garðvinna


Nú er það garðvinna. Það er aldrei tími fyrir garðinn fyrr en það hægist á vinnu við sauðburð


Þórður klippti runnana og ég sá um sláttinn


Litla kerran kemur að góðum notum


Flottar græjur emoticon


Þær eru byrjaðar að fara afvelta. Þetta er í annað sinn sem við reisum við kindur á þessu vori


Þessi var heppin. Hún bjargaðist. Nú er það drónaflug á hverjum degi til að koma í veg fyrir að missa þær afvelta





Molinn kveður


23.05.2019 13:21

Smá drónaflug og fl.


Þarna er álftapar


Flaug alveg að þeim. Þau voru mjög róleg og voru ekkert smeyk við drónann


Ég þarf að fylgjast með því þegar það koma ungar emoticon


Mér sýnist nú glytta þarna í unga. Kannski eru komnir ungar, en líklegast ekki úr öllum eggjunum. Þá bíða þau þangað til allir ungarnir eru komnir


Ég flaug aðeins niður á engi


Þetta er stykki nr. 6 sem er niður á engi


Og stykki nr. 7 sem er líka niður á engi


Þetta er skógarreiturinn sem er upp í fjallshólfinu okkar


Fjallshólfið okkar


Já þetta er fjallshólfið


Þessi skógarreitur er á túninu fyrir ofan íbúðarhúsin


Þessi gemlingur var sloppinn út úr girðingunni okkar og kominn í Spónsgerðishólfið við hliðina


Ég rak hann með drónanum heim


Hér sést hvar hann fór á milli hólfa


Já hann fór í ánni. Núna er Þórður búinn að gera við þetta og vonandi kemst hann ekki aftur þangað


12-080 Gola með tvær gimbrar undan 17-371 Krissa. Hún var þrílembd og þriðja gimbrin fór undir 12-092 Eik


15-195 Harpa með gimbrar undan 18-593 Hamri


12-322 Heiðdís með hrút og gimbur undan 17-371 Krissa


17-358 Pysja með hrúta undan 13-982 Móra


13-104 Skrukka með hrút og gimbur undan 17-586 Nóa. Hún var þrílembd og það var hrútur sem fór undir 16-295 Sombý





Molinn kveður


22.05.2019 20:38

Drónaflug inn á Myrkárdal


Myrkárdalur


Þarna sést fram í botn á Myrkárdal


Séð niður að Myrkárdal, Myrká, Búðarnesi og Myrkárbakka


Myrkárdalur


Myrká, Búðarnes og Myrkárbakki


Myrká


Myrká


Hrútur og gimbur undan 14-156 Golmu og 18-591 Vita


Einn hrútur og tvær gimbrar undan 15-242 Galíu og 17-586 Nóa


Undan Galíu og Nóa


Þessi góði tími byrjaður, þar sem lömbin heimsækja okkur í garðinn okkar


Lambafjör, já eða lamba-fundur

9 ær eftir. 554 lömb á lífi





Molinn kveður


21.05.2019 18:51

Gullin okkar


Gullmolarnir okkar emoticon

10 ær eftir emoticon





Molinn kveður


20.05.2019 17:24

Lömb


Hrútur  og gimbur undan 15-244 Ræmu og 17-586 Nóa


Gimbur undan 15-195 Hörpu og 18-593 Hamri, hin gimbrin er þarna á bakvið


Hrútur undan 12-082 Rúpíu og 16-571 Þyrli og hrútur undan 17-333 Múu og 18-591 Vita. Þessir hrútar voru vandir undir 12-321 Stutthyrnu, því hún var einlembd og lambið kom dautt. Fékk því tvö lömb emoticon


Gimbrar undan 17-314 Slettu og 13-982 Móra


Gimbur undan 18-396 Donnu og 18-590 Sonik. Hún fór undir 13-115 Emblu


Gimbur undan 13-115 Emblu og 16-571 Þyrli. Annað lambið hjá henni kom dautt og því var vanið undir hana

13 ær eftir að bera og komin 547 lömb á lífi





Molinn kveður


19.05.2019 18:48

15 ær eftir


Drónamynd

Ca. 15 ær eftir. Alveg að verða búið. Og ca. 540 lömb





Molinn kveður


18.05.2019 19:49

Elsku tengdamamma


Í dag hefði þessi yndislega kona, tengdamamma mín, orðið 88 ára. Við söknum hennar á hverjum degi. Blessuð sé minning þín elsku Sigga emoticon


Sigga og synirnir á góðum degi


Þeir bræður (fjórir af fimm, sá fimmti í símanum) komu saman í tilefni dagsins


Kveikt á kertum emoticon 


Fór í smá eftirlitsflug





Molinn kveður


17.05.2019 17:12

Hreiður


Það er þrastarhreiður í þessari vél


Það er þarna á hásingunni


Hreiðrið er þarna á bakvið


Það eru ungar í hreiðrinu. Þessi vél var á ferðinni í fyrradag í nokkra klukkutíma, án vitundar um þetta hreiður. Ég veit ekki hvort fuglinn hefur legið á eða beðið eftir að vélin kæmi aftur á sinn stað. Ég held allavega að ungarnir hafi lifað þetta af


Svo er annað þrastarhreiður þarna


Fimm egg hér


Og svo eru komnir ungar

Það eru rétt innan við 30 ær eftir að bera og komin yfir 500 lömb, á lífi





Molinn kveður




clockhere

Namn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Mobilnummer:

820-7756

Födelsedag:

23. júlí, 1962

Postadress:

Möðruvellir 3

Plats:

Hörgársveit

Om:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

Händelse

12 år

7 månader

9 dagar

Haukur Nói, kom í heiminn

Händelse

9 år

9 månader

11 dagar

Birgitta Ósk, kom í heiminn

Händelse

2 år

3 månader

9 dagar

Länkar