Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 990
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 1048
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 910113
Samtals gestir: 48034
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 09:27:30

Færslur: 2019 Ágúst

16.08.2019 21:16

Seinni sláttur

Seinni sláttur hafinn. Heimatúnin slegin, en það verður ekki snúið á þeim fyrr en á sunnudaginn vegna þurrkleysis. Vonandi verður hægt að hirða þetta fljótlega emoticon 

Þessi mynd er tekin í fyrrislætti



Kláraði að púsla í dag/kvöld emoticon





Molinn kveður


15.08.2019 21:19

Ugla

Draumur minn varð að veruleika í dag þegar ég hitti þessa

Já mig hefur alltaf langað til að ná mynd af uglu. Þessi var á leið okkar á rúntinum í dag. Hún var frekar gæf og leyfði mér að smella nokkrum myndum af sér áður en hún flaug burtu


Flottur fugl





Molinn kveður


14.08.2019 21:40

Rigning og þá er púslað


Svona dagar hjá mér í rigningunni emoticon Það sem er gaman að púsla emoticon





Molinn kveður


13.08.2019 21:18

Kjarnaskógur


Við fórum í Kjarnaskóg í dag. Keyptum okkur pitsu og safa og borðuðum þar


Svo fengu leiktækin að finna fyrir orkuboltunum


Gott að geta komið sér undir þak, þegar rignir mikið. Það rigndi mikið í dag í skóginum




Jógahugleiðsla upp á þaki






Einn í slökun í bleytunni


Og svo kaffitími, eftir nokkra klukkutíma í Kjarna





Molinn kveður


12.08.2019 19:56

Í dag féllu þrjár aurskriður í Hörgársveit

Það féllu þrjár aurskriður í Hörgársveit í dag


Þessi er fyrir ofan Ytri-Reystará


Þessi er fyrir ofan Skriðuland


Og þessi er fyrir ofan Kjarna


Vatn sem rennur úr skriðunni og niður á tún í Kjarna


Hér rennur það yfir túnið


Það er búið að rigna í allan dag. Rennan á húsinu hefur ekki undan. Það er búið að bora gat á niðurfallsrörið og bunan stendur þar út. Ég held að það þurfi ekki að meiri vökva í bili fyrir gróðurinn. Hann er búinn að fá nóg


Þetta verður orðið flott í næsta mánuði





Molinn kveður


11.08.2019 20:23

Rigning í allan dag


Þegar það rignir, já og rignir er gott að fara í sund. Sundlaugin á Þelamörk er ein besta sundlaug landsins emoticon





Molinn kveður


10.08.2019 21:20

Handverkshátíðin á Hrafnagili


Við skruppum á Handverkshátíðina á Hrafnagili í dag. Þar var margt og mikið að sjá eins og venjulega


Við fórum með þessa þrjá með okkur og það gekk bara vel








Listaverk eftir Hrein Halldórsson alþýðulistamann. Mjög flott


Ég held að pabbi og mamma hafi átt Farmal cub þegar við bjuggum á Molastöðum í Fljótum. Hann var einmitt með svona sláttugreiðu. Líklega er þetta eins emoticon



Júlli fékk að fara á hestbak





Molinn kveður


09.08.2019 19:52

BÚIN AÐ MÁLA


Við vorum byrjuð að mála um kl. átta í morgun þessar hliðar


Og við vorum búin um kl. 15  emoticon  emoticon  emoticon  Þá erum við búin að mála allt, ÆÐISLEGT


Komið eitt ár með þessum emoticon





Molinn kveður


08.08.2019 21:18

Farið að sjá fyrir endann á málaravinnunni


Við vorum komin út að mála um kl. 8 í morgun. Við rukum í vestur stafninn


Já og við vorum búin með hann um kl. 11. Þá eru allir stafnarnir búnir og það er nú gott. Mikið verk að mála þá


Þetta breytist mikið við að mála emoticon


Nú eigum við bara þetta L eftir. Vonandi rignir ekki á morgun svo við getum KLÁRAРemoticon emoticon





Molinn kveður


07.08.2019 19:43

Enn að mála


Og áfram höldum við áfram að mála. Nú er það suður stafninn


Byrjuðum ekki fyrr en um kl. þrjú í dag, að mála, en við kláruðum þetta emoticon





Molinn kveður


06.08.2019 21:36

Íbúðarhúsið, austur hlið


Þá er það íbúðarhúsið, hlið tvö sem er austur hliðin


Já við náðum að klára að mála þessa hlið emoticon emoticon





Molinn kveður


05.08.2019 19:50

Byrjuð að mála íbúðarhúsið


Jæja þá er það íbúðarhúsið, norður hliðin


Og við kláruðum hana í dag emoticon





Molinn kveður


04.08.2019 18:19

Bílskúrinn klár


Jæja þá er að hendast í að mála suður hliðina á bílskúrnum


Og já við kláruðum bílskúrinn fyrir hádegi


Bílskúrinn klár emoticon

Við ákváðum að slá restinni af deginum upp í kæruleysi og leyfa börnunum að fara í tívolí á Akureyri

Hér eru nokkrar myndir af því




























Já þau skemmtu sér vel í dag. Fóru í hin ýmsu tæki emoticon





Molinn kveður


03.08.2019 20:58

Enn að mála bílskúrinn


Við ákváðum, fyrst við erum að mála og gera fínt, að rífa þetta grindverk niður


Þórður byrjaður að rífa þetta niður


Og nú er þetta farið emoticon  Vá maður verður smá stund að venjast þessu


Norður hliðin


Norður hliðin máluð í dag


Vestur hliðin


Og vestur hliðin líka máluð í dag

Þá er bara suður hliðin eftir og vonandi náum við að mála hana á morgun





Molinn kveður


02.08.2019 22:00

Byrjuð að mála bílskúrinn


Þórður er búinn að standa sig vel í viðgerðum á húsinu og bílskúrnum


Þá er að byrja á að mála bílskúrinn. Ég byrjaði á austur hliðinni


Og náði að klára hana í dag




Ég sé mikinn mun emoticon





Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

5 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

7 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

5 daga

Tenglar