Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Today's page views: 4678
Today's unique visitors: 26
Yesterday's page views: 5248
Yesterday's unique visitors: 11
Total page views: 1972072
Total unique visitors: 83875
Updated numbers: 29.4.2025 21:20:43

Blog records: 2010 N/A Blog|Month_9

29.09.2010 16:49

Halló hér og þar

Jæja enn er ég á lífi. Ég er bara eitthvað svo löt að skrifa hér inn.
Hnéð er enn að stríða mér. Er ennþá bólgin, og nú er komin ný bólga og hún er framan á hnéskelinni. Veit ekki alveg hvað er í gangi.
Við Þórður erum að fara á morgun, með góðu fólki, í rútu á Snæfellsnesið. Við erum að fara að skoða hrútakaup. Vonandi finnum við sv.flekkóttan kollóttan hrút sem hægt væri að nota á kollóttu kindurnar okkar.
Smíðin hjá okkur á Djúpárbakka gengur bara vel. Simmi og Helga eru búin að vera að hjálpa okkur að smíða. Já og pabbi og Árdís rifu það gamla sem fyrir var svo hægt væri að byrja að smíða.
Árdís var hjá okkur í ca. 10 daga. Hún kom til að vera við jarðaförina Hauks. Hún var líka í réttunum, og það fannst henni ekki leiðinlegt.
Við erum búin að fá litla hænuunga. Þeir komu úr eggjunum 11-15 sept. Þeir eru svo fljótir að stækka. Maður sér mun á þeim á hverjum degi.
Ég er að setja inn myndir, því ég hef ekki gert mikið af því lengi.
Ég er að hugsa um að hafa svo eitt albúm af smíðinni á Djúpárbakka og annað af ungunum.


Molinn kveður.

15.09.2010 09:23

Jæja ég er á lífi

Góðan dag hér, eftir langt hlé.
Æi maður er búinn að vera hálf dofinn síðustu daga, og er enn. Tengdapabbi dó laugardaginn 4. september, og var þá búinn að vera mjög veikur í hálfan mánuð. Jarðarförin var í gær.
Blessuð sé minning þín elsku Haukur minn.

Það eru búnar að vera göngur og réttir hjá okkur, og við Þórður erum búin að kollheimta, ásamt Simma, Siggu og Hauk, og Guðmundi. Rauðalækjarbúinu vantar 8 fullorðnar og 8 lömb. Þau koma líklegast næstu helgi í öðrum göngum.

Molinn kveður.









  • 1


clockhere

Name:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Cell phone:

820-7756

Birthday:

23. júlí, 1962

Address:

Möðruvellir 3

Location:

Hörgársveit

About:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

event has passed

13 year

7 months

15 days

Haukur Nói, kom í heiminn

event has passed

10 year

9 months

17 days

Birgitta Ósk, kom í heiminn

event has passed

3 year

3 months

15 days

Links