Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Today's page views: 81
Today's unique visitors: 1
Yesterday's page views: 674
Yesterday's unique visitors: 4
Total page views: 3529223
Total unique visitors: 96100
Updated numbers: 8.6.2026 01:31:54

Blog records: 2026 N/A Blog|Month_6

07.06.2026 19:38

Klaufsnyrting, dagur 3

Það var stór dagur í klaufsnyrtingu í dag. Bara 23 ær eftir.

Við vorum með góðan og hraustan mann með okkur (Gest).

Vá hvað það verður gott þegar við förum svo að keyra á

fjall um miðjan mánuðinn, að þurfa ekki að klippa klaufir þá.

Við getum þá farið fleiri ferðir á dag smiley

 

Við ætlum að reka inn á morgun og vonandi koma þær

sem eiga eftir að fá snyrtingu

 

Nafna mín, duglega og góða, fór heim í dag. 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.06.2026 17:04

Klaufsnyrting, dagur 2

Við klipptum klaufir á 23 kindum í morgun. Þetta gengur

svakalega vel hjá okkur. Þarna má sjá forysturnar okkar. Þær

fengu klaufsnyrtingu í morgun. Við ætlum að halda áfram á

morgun smiley

Nafna mín kom í gær og ætlar að gista tvær nætur hjá 

ömmu og afa

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.06.2026 14:22

Klaufsnyrting, dagur 1

Við klipptum klaufir á 22 kindum í morgun. Það er ekki séns

að klippa klaufirnar á þeim áður en þær fara út á vorin, því

þær eru svo grjótharðar. Þegar þær eru búnar að vera úti,

þá verða þær mýkri og ekkert mál að klippa þær. Það er bara

vika síðan Þórður var í aðgerð á hendinni og hann klippti

klaufir á móti mér. Hann er jaxl þessi elska heart Við vorum

líka með einn öflugan (Damian) sem hjálpaði mér að setja

kindurnar í stólinn. Við ætlum að taka nokkrar kindur á 

morgun. Það verður gott að vera búin að þessu þegar við

förum að keyra þær í fríið sitt

 

 

 

 

 

Molinn kveður 

 

 

04.06.2026 16:27

Skólaslit Þelamerkurskóla

4. bekkur að útskrifast

7. bekkur að útskrifast

Ooohh þessi drengur okkar. Hann fékk framfaraverðlaun

og átti það svo sannarlega skilið elsku gull

Hann fékk sko bikar

 

Þelamerkurleikarnir voru í gær

Alexander fékk medalíu fyrir spretthlaup

 

Víkingur fékk 5 medalíur

 

 

 

 

Fottir strákarnir okkar heart

Svo fékk Víkingur bók í verðlaun fyrir að velja bók

Svona lítur hendin á Þórði út í dag. Lítur mjög vel út og 

þónokkuð betur en saumurinn á hinni hendinni var

 

Það er búið að dæma bílinn okkar ónýtan. Tryggingarnar

ætla að kaupa hann af okkur

 

 

 

Við erum svo heppin að þeir sluppu algjörlega úr þessu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

03.06.2026 16:09

Lömbin eru að flýta sér að stækka

22-018 Kópelía með hrút og gimbur undan 25-738 Max.

Hrúturinn er með T137, en það er ekki komin greining á

gimbrina

Flottu arfhreinu T137 systurnar undan 24-076 Rist og

24-736 Lúða. Þær eru mjög samrýmdar

Maríuerla

Víkingur spilaði á skólaslitum tónlistarskólanum, í Hlíðarbæ

3. og 4. bekkur Þelamerkurskóla

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.06.2026 16:58

Fjórhjólaferð niður á engi

Við fórum smá rúnt niður á engi

Og meðal annars, fengum við okkur að drekka. Það er 

nauðsynlegt smiley

Það voru nokkrar svona holur í kantinum. Við vitum ekki

hvers vegna, en vorum að giska á að fuglar hafi krafsað 

þarna þessar holur

Ein holan

Verið að skoða steina til að taka heim og mála

Það voru margir Hettumáfar sem voru við tjörnina. Held

að þeir hafi verið með hreiður þar

Lómapar á tjörninni

Lóa

Tjaldur

Æðarfugl, Bliki

Jaðraka

Jaðraka

Gimbur undan 23-050 Baddý og 25-740 Þræði. Hún er með

R171 og N138

Hrútur undan 19-460 Larisu og 24-735 Fenox. Hann er með

R171

Hrútur og gimbur undan 24-055 Porru og 24-733 Púka. Það

á eftir að greina hrútinn, en gimbrin er með T137 og N138.

Gimbrin er hægra megin.

Lilla litla. Hún er undan 24-060 Mæju og 24-733 Púka. Það

á eftir að greina hana

Gimbur undan 20-498 Hriflu og 25-745 Aragon. Hún er með

R171

Hrútur undan 24-076 Rist og 25-738 Max. Hann er arfhreinn

T137

23-030 Þáma með hrúta undan 24-733 Púka. Við eigum 

eftir að fá greininguna þeirra

24-057 Kempa með hrúta undan 24-733 Púka. Þessi vinstra

megin er kominn með greiningu og er með T137. Við eigum

eftir að fá úr hinum

25-093 Salka með gimbur undan 25-740 Þræði. Hún er með

H154

Hrútur undan 20-510 Tindru og 24-735 Fenox. Hann er með

V136 sem er ekki gott

Hrútar undan 24-059 Fregn og 24-740 Þræði. Þessi hægra

megin er með C151 og við eigum eftir að fá greiningu úr

hinum

Hrútur og gimbur undan 23-053 Lúpínu og 24-731 Galsa.

Við eigum eftir að fá greiningu úr hrútnum, en gimbrin er 

bæði með T137 og R171

Hrútur undan 25-094 Fless og 25-741 Mjalla. Hann er með

R171

Hrútur undan 24-070 Másu og 24-731 Galsa. Hann er með

R171

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.06.2026 16:52

Arfgerðarsýni

Við fengum mörg sýni úr arfgreiningu í morgun. Við eigum

samt eftir að fá eitthvað um 60 sýni. Núna eins og staðan 

er, þá erum við með

9 arfhrein T137

1 arfhreint R171

5 sem eru bæði með R171 og T137

36 sem eru með R171. 5 af þessum 36 eru líka með N138

og 3 af þessum 36 eru líka með H154

13 sem eru með T137. 3 af þessum 13 eru líka með N138

og eitt af þessum 13 er með C151

14 eru með N138. 2 af þessum 14 eru líka með H154

4 eru með H154 

og svo er 1 með C151

 

Þetta á svo eftir að breytast þegar við fáum fleiri sýni úr

greiningu

 

Mér varð að ósk minni. Þessir eru báðir arfhreinir T137

Þeir eru undan 22-013 Vanadís og 24-733 Púka

Gimbur undan 24-068 Sissu og 25-745 Aragon. Hún er bæði

með T137 og R171. Ekki skemmtilegur litur á henni

Hrútur undan 22-019 Krukku og 25-738 Max. Hann er með

T137 og er fjórlembingur

Hrútur undan 24-077 Rentu og 25-738 Max. Hann er með

T137

Gimbur á móti undan Rentu og Max. Hún er arfhrein T137.

Svo spennandi tími núna. Ég var svo spennt í gærkvöld eftir

þetta, að ég gat varla sofnað

 

Ég á eftir að setja inn myndir af arfgerðarlömbum næstu 

daga

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

 

  • 1


clockhere

Name:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Cell phone:

820-7756

Birthday:

23. júlí, 1962

Address:

Möðruvellir 3

Location:

Hörgársveit

About:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

event has passed

14 year

8 months

24 days

Haukur Nói, kom í heiminn

event has passed

11 year

10 months

27 days

Birgitta Ósk, kom í heiminn

event has passed

4 year

4 months

25 days

Links