Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Today's page views: 4565
Today's unique visitors: 25
Yesterday's page views: 5248
Yesterday's unique visitors: 11
Total page views: 1971959
Total unique visitors: 83874
Updated numbers: 29.4.2025 20:59:35

Blog records: 2015 N/A Blog|Month_12

26.12.2015 18:02

GLEÐILEG JÓL

Gleðileg jól kæru vinir og takk fyrir innlitið og kommentin, á árinu sem er að líða.


Svona var nú flott útsýnið í morgun á Möðruvöllum 3

Jæja ég get sagt ykkur að ég er á lífi. Ég er búin að hafa mikið að gera, að minni sögn, núna í desember og þar af leiðandi hef ég ekki skrifað neitt hér inn eins og þið hafði orðið vör við. 


Úr fjárhúsunum er það að frétta að við notuðum félagshrút 4. og 5. desember.  Það voru 11 sem fengu við honum, en ein gekk upp.


Þetta er Mökkur félagshrútur.

Við létum ekki sæða neina núna.

Við settum hrútana í, 7. desember. Líklegast eru þær allar gengnar. Ég er komin með dagsetningu á öllum nema 15. Það auðveldar vinnu á sauðburði. Sauðburður byrjar 25. apríl og miðað við stöðuna í dag, þá verður hann til 16. maí, í 22 daga. 
Í fyrra var hann í nærri tvo mánuði


Þessir gullmolar koma ekki núna um jólin, en vonandi koma þeir í janúar. Sakna þeirra endalaust.


Þessir gullmolar koma og ætla að vera hjá okkur um áramótin, ásamt foreldrum þeirra. Hlakka til að fá að njóta þeirra


Þessir gullmolar eru alltof langt í burtu. Þau koma ekki um jólin, en þau koma til okkar á nýju ári. Hlakka til að sjá þau emoticon


Leiðið hans Hugins elsku litla gullsins okkar. Fjölskyldan hans kom með svo fallegan ljósakross núna fyrir jólin.

 
Damian hress og kátur. Það gengur mjög vel með hann


Guðrún Helga og fjölskylda gáfu mér þennan púða í jólagjöf. Þetta er mynd sem ég tók. Þessi mynd er komin út um allan heim.
Ég fékk líka dagatal frá þeim, með uppáhaldsmyndunum mínum, sem ég hef tekið. Snilldar jólagjöf emoticon

Vonandi er síðan mín að lifna við aftur. Ætla að reyna að vera dugleg að skrifa hér inn.


Molinn kveður



  • 1


clockhere

Name:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Cell phone:

820-7756

Birthday:

23. júlí, 1962

Address:

Möðruvellir 3

Location:

Hörgársveit

About:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

event has passed

13 year

7 months

15 days

Haukur Nói, kom í heiminn

event has passed

10 year

9 months

17 days

Birgitta Ósk, kom í heiminn

event has passed

3 year

3 months

15 days

Links