Þessar eru óbornar. Þrjár fullorðnar og þrír gemsar. Það eiga eftir að koma 7 lömb úr þeim
Það bar engin í gær.
Í gær voru 542 lömb á lífi. Eitt lamb fannst dautt í morgun, þannig að það eru 541 á lífi
27 fóstur/lömb komu/eru dauð
14 komu dauð fóstur. (Í því eru fóstur vegna lambaláts)
4 hafa drepist í burði (tvö af þeim komu afturábak og hafa laskast, og tvö undan gemlingum sem áttu erfitt með að bera)
9 hafa drepist á sauðburði. (Þrjár lögðust ofaná lambið sitt, ein steig ofaná lambið sitt. Eitt lamb fæddist bæklað og varð að aflífa. Þrjú voru aldrei almennilega spræk og eitt fannst dautt úti
Talið var vitlaust í þremur
Ein talið með 2, en kom með 1
Ein talið með 1, en kom með 2
Ein talið með 2, en kom með 3
Græddum þarna eitt lamb
5 ær hafa drepist
6 ær hafa farið af stað með fleiri fóstur
Það voru talin 575 fóstur. Eitt þeirra var að drepast, þannig að þau voru 574
Á lífi núna eru 541 lömb
Vanhöld 27, sem gera ca. 4,8%
Og 7 eftir að fæðast og eitt lamb í gróða
Þá virðist þetta ganga upp
Við erum með þrjá heimalinga
Hrútar undan 14-178 Brönu og 17-103 Dranga
Við fórum í fjöruna á Gáseyri, í dag. Til öryggis voru settir hjálmar á hausana til að verjast kríunni
Hún var ekki grimm í þetta skiptið. Líklegast ekki farin að verpa
Molinn kveður