Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 100
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1574
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 3521718
Samtals gestir: 96076
Tölur uppfærðar: 4.6.2026 01:15:45

01.06.2026 16:52

Arfgerðarsýni

Við fengum mörg sýni úr arfgreiningu í morgun. Við eigum

samt eftir að fá eitthvað um 60 sýni. Núna eins og staðan 

er, þá erum við með

9 arfhrein T137

1 arfhreint R171

5 sem eru bæði með R171 og T137

36 sem eru með R171. 5 af þessum 36 eru líka með N138

og 3 af þessum 36 eru líka með H154

13 sem eru með T137. 3 af þessum 13 eru líka með N138

og eitt af þessum 13 er með C151

14 eru með N138. 2 af þessum 14 eru líka með H154

4 eru með H154 

og svo er 1 með C151

 

Þetta á svo eftir að breytast þegar við fáum fleiri sýni úr

greiningu

 

Mér varð að ósk minni. Þessir eru báðir arfhreinir T137

Þeir eru undan 22-013 Vanadís og 24-733 Púka

Gimbur undan 24-068 Sissu og 25-745 Aragon. Hún er bæði

með T137 og R171. Ekki skemmtilegur litur á henni

Hrútur undan 22-019 Krukku og 25-738 Max. Hann er með

T137 og er fjórlembingur

Hrútur undan 24-077 Rentu og 25-738 Max. Hann er með

T137

Gimbur á móti undan Rentu og Max. Hún er arfhrein T137.

Svo spennandi tími núna. Ég var svo spennt í gærkvöld eftir

þetta, að ég gat varla sofnað

 

Ég á eftir að setja inn myndir af arfgerðarlömbum næstu 

daga

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

8 mánuði

20 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

10 mánuði

23 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

4 mánuði

21 daga

Tenglar

Eldra efni