Já eins og ég hef sagt áður þá eru þessar systur mjög samrýndar. Þær báru á sama sólahring. Önnur í nótt og hin núna í kvöld. Það komu 6 lömb úr þeim. Önnur með þrjá hrúta og hin með þrjár gimbrar
Lömb undan 15-214 Snjáku
Svona getur þessi gullmoli verið tímunum saman. Hann sest í króna og lömbin koma til hans og leggjast hjá honum
Þetta finnst honum gaman
Og svo þarf að gefa nokkrum lömbum ábót
Núna eru 40 ær eftir. Þetta er alveg að hafast
Það eru eitthvað um 6 ær sem sónaðar voru með 2, en komu með 3
Svo eru nokkrar sem sónaðar voru með 1 og hafa farið á stað með 2
Við erum búin að setja mjög margar lambær út
Molinn kveður