6-8 dagar í sauðburð.
Það voru settar upp nokkrar einstaklingsstíur í dag.
Glæsilegt
Ég hélt að vorið væri komið, en það er frekar leiðinlegt veður núna. Snjókoma og frekar blint. Ég held að þetta sé síðasta hretið og vorið verði gott. Allavegana er það mín ósk
Kaffitíminn í dag, var í hjólhýsinu. Sá fyrsti á þessu ári þar. Alltaf gaman þegar við tökum hjólhýsið í notkun. Nú fer ég að setja hita á það og taka til í því, því ég ætla að byrja að vakta kindurnar næsta laugardag.
Molinn kveður