Hér eru ærnar sem vantar af fjalli
12-079 Filma. Lambið hennar er búið að skila sér. Hún rauk úr hóp sem hún var í, og upp á fjall. Það hefur ekki sést til hennar síðan
13-118 Skrúfa. Hún er með einn svartan hrút. Þau eiga vonandi eftir að skila sér
15-246 Tinna. Bæði lömbin hennar eru komin, þannig að líklegast hefur hún ekki lifað af
16-261 Rist. Bæði lömbin hennar eru komin og líklegast hefur hún ekki lifað af
17-356 Þræta. Hún er með eina hvíta gimbur
17-362 Klippa. Hún er með eina hvíta gimbur
Ég vona svo innilega að þær eigi eftir að skila sér af fjalli, með lömbin
Það eru svo þrjú stök lömb sem vantar líka af fjalli
Það fækkar í mislita stofninum ef þær skila sér ekki
Molinn kveður