Jæja nú fer síðan að lifna við aftur. Ég hef ekki haft mikinn tíma í að blogga. Búin að nota kvöldin í svefn ef engin er að bera. Ég sef enn í hjólhýsinu og er búin að gera það síðan 14. apríl og vakna enn á tveggja tíma fresti. Ég er búin að sofa 38 nætur í fjárhúsunum og á eftir að sofa nokkrar í viðbót. Enn eru 6 óbornar. Tveir gemsar önnur tvílembd og hin einlembd og 4 fullorðnar. Ég fór myndatúr í dag og tók myndir af sæðislömbunum.
Það voru þrjár sem héldu við Garra og fimm við Þoku-Hrein
Hér koma myndir af Garra lömbum
Gimbur undan Mjöll og Garra
Gimbur undan Mjöll og Garra
Gimbur undan Þotu og Garra
Gimbur undan Spjálk og Garra
Gimbur undan Spjálk og Garra.
Spjálk var þrílembd, en það kom dautt fóstur með þessum lömbum og það var gimbur.
Hér koma svo myndir af Þoku-Hreins lömbum
Hrútur undan Furu og Þoku-Hrein
Gimbur undan Furu og Þoku-Hrein
Gimbur undan Orku og Þoku-Hrein
Hrútur undan Frigg og Þoku-Hrein
Gimbur undan Frigg og Þoku-Hrein
Gimbur undan Drífu og Þoku-Hrein
Svo fengum við gimbur undan Klukku og Þoku-Hrein, en Klukka lagðist ofan á hana og drap hana.
Við eigum 5 gimbrar undan Garra.
og við eigum 4 gimbrar og 2 hrúta undan Þoku-Hrein
Ég skrifa fljótt aftur og segi frá fjölda lamba og fl.
Molinn kveður