Þegar verið var að telja, þá merktu þeir ærnar með lit, eftir því hvað það voru mörg lömb í þeim. Ég var búin að skrifa niður hvað hver kind var með, en alveg sama hvernig ég leitaði og taldi, þá vantaði mig eina gelda, eina einlembu og einn geldan gemling, í bókhaldið hjá mér miða við það sem Gunnar gaf mér upp. Ég er svo loksin búin að fá þetta rétt og ég leiðrétti í blogginu um fósturtalninguna
Byrjum á gemlingunum. Þeir eru 51
Rauður blettur á hálsi merkir gelt. Það eru 8 gemsar geldir
Rauður blettur á baki merkir eitt fóstur, en það mun drepast. Það eru 5 gemsar
Tveir rauðir blettir merkja tvö fóstur en þau munu bæði drepast. Það eru 3 gemsar.
Þá verða 16 gemlingar lamblausir
Blár og rauður merkja tvö fóstur og annað drepst. Það eru tveir svoleiðis
Blátt merkir tvö fóstur. Það eru 16 gemlingar. Þannig að það eru 16 sem vonandi bera tveim lömbum svo drepst annað í tveim og bæði fóstrin í þrem.
Svo 17 gemlingar ómerktir. Þeir eru með eitt.
Við höfum aldrei verið með svona lélega útkomu á gemlingunum
Fullorðnu ærnar eru 254
Það er eins og hjá gemlingunum, þá merkir rautt á hálsi gelt. Það eru 8 geldar
Rautt merkir eitt fóstur. Það eru 36 merktar svoleiðis
Blátt merkir þrjú fóstur. Það eru 40 með svoleiðis merkingu
Svo fékk ein svona merkingu þar sem hún er með fjögur fóstur
Svo er restin ekki með neinn lit þar sem þær eru með tvö fóstur. Þær eru 169
Þetta er þessi sem ég leitaði sem lengst að. Ég leitaði að kind með rauðan blett á hálsi, og fann hana loksins. Það er varla hægt að sjá þennan blett og ekki skrítið að ég hafi alveg verið orðin rugluð í að leita
Þetta er Brák sem hefur verið þrí og fjórlembd til skiptis, frá því að hún var gemlingur. Núna kom hún mér djöfulega á óvart og er bara með eitt fóstur. Ég var búin að spá því að hún kæmi með þrjú. En svona er þetta bara
Þetta er elsta ærin. Hún verður 10 vetra í vor og kom öllum verulega á óvart, því hún er með þrjú fóstur. Sú gamla ætlar að enda þetta með stæl.
Molinn kveður