Þá er ættarmótið afstaðið. Það var mjög gaman að hitta fólkið. Þetta voru afkomendur Steins og Oddnýjar, afa og ömmu Þórðar.Flotti hópurinn sem gisti hjá okkur um helgina. Dagur Árni, Björn Þór, Sigurður Tumi, Jökull Logi, Ísabella María, Júlíus Birkir og Einar Breki.
Bjössi fór á sunnudaginn, Júlíus fór á mánudaginn og Siggi fer á föstudaginn, en þá koma þrír guttar, þeir Bjössi, Níels og Einar. Þeir verða þrír um næstu helgi.
Guðrún Helga, Einar Breki og Ísabella eru hér enn. Þau verða hér eitthvað áfram.
Við erum búin að selja íbúðina okkar Sólvelli 7, og við erum líklegast líka búin að selja sumarbústaðinn. Allt á réttri leið.
Við fórum labbikindarúntinn okkar í dag. Við sáum 13 lömb til viðbótar í hópinn sem við erum búin að sjá í sumar. Við vorum ekki ánægð með Módísi. Hún var með tvo hrúta, en átti að vera með þrjá. Svo var það líka hún Gulbrá. Hún var með einn hrút, en átti að vera með hrút og gimbur. Ég vona að þau eigi eftir að skila sér eins og gimbrin hennar Sneglu. Þær sem við sáum voru, Módís með tvö, Brella með tvö, Gríma með tvö, Perla með tvö, Klukka með tvö, Þoka með tvö og Gulbrá með eitt.
Siggi Tumi hitti Klukku sína með hrútinn og gimbrina. Þau voru fyrstu lömbin sem fæddust í vor.
Siggi Tumi var svo ánægður að hitta Klukku.
Lömbin undan Klukku. Þau eru orðin svo stór og falleg.
Einar Breki og Guðrún komu með okkur, og hér er Einar Breki að flýja undan kindunum. Þær ætluðu að troða hann um koll. Guðrún kom honum til bjargar.
Ég setti inn nokkrar myndir.
Molinn kveður.