Þessir tveir eru góðir vinir. Einar Breki vill alltaf hjálpa afa, og helst vera með honum allann daginn. Honum finnst það mjög gaman
Þessir flottu ömmu og afa gull voru hjá okkur í tvær vikur, að vísu bara virku dagana. Það gekk mjög vel
Ég elska þessa mjög mikið
Júlli kom og var eina viku og það gekk mjög vel með þá alla saman
Gott að fá sér pönnukökur eftir góðan dag
Við skruppum í Baugasel. Það er skrítið að það er ekkert búið að snyrta í kringum húsið þar. Grasið nær upp að hnjám
Árdís og Kristófer komu í heimsókn til afa og ömmu. Við fórum upp í fjallshólfið og hittum nokkrar kindur og lömb þar. Hér er Árdís að gefa Zeldu brauð
Og hér er Kristófer með einn heimalinginn. Þau eru mjög gæf og eru ekkert á móti því að fá klapp
Drífa með tvær gimbrar og einn hrút
Gulbrá með tvær gimbrar og einn hrút
Þessir hrútar eru undan Menju
Þetta eru móðurlaus lömb sem eru í fjallshólfinu. Þau eru undan Fjöður
Þetta er yngsta lambið. Það fæddist 7. júní
Maríuerla hefur verpt í þakrennuna á bílskúrnum. Annað hvort eru 4 fúlegg eða hún hefur orðið fyrir truflun, því það eru 4 heil egg þarna
Þarna er hreiðrið
Molinn kveður