Fyrstu lömbin úr sæðingunni. Tvílembdur gemlingur.Skrúfa gemlingur bar tveim hvítum hrútum undan Dal, 22. apríl.
Hér eru þeir Jökull Logi og Dagur Árni með lömbin sem fæddust í gær.
Til gamans þá setti ég lambakónginn hjá þeim til að sjá stærðarmuninn á þeim. Hann er 19 daga gamall í dag.
Smá munur á stærð
Jökull Logi fyrirsæta. Algjörlega óhræddur við dýrin.
Árdís Marín var hjá okkur um helgina. Hér er hún í góðum félagsskap
Dagur Árni í góðum gír og ekkert hræddur við dýrin.
Og hér er Jökull Logi, hvergi smeikur
Hafsteinn og Fanney komu með gullin sín í heimsókn um helgina, til að sjá lömbin. Hér er Helga Dís komin með eitt lamb í dekur. Hún elskar lömbin og á auðvelt með að fá þau til að koma til sín í dekur.
Og hér er Ríkharð Pétur búinn að ná sé í lamb. Hann er hvergi smeikur.
Hann gaf því meiri segja góðan koss. Hér er hann að kyssa "lambið sitt" og hann skírði það, Skugga. Þetta er hrútur númer 15.
Það er allt orðið snjólaust hjá okkur. Lambærnar ánægðar að komast út. Þær fá að fara út part úr degi þegar gott er veður.
Nú bíð ég bara eftir fleiri lömbum
Nokkrar myndir rötuðu í myndaalbúmið.
Molinn kveður.