Gleðileg jól kæru vinir og takk fyrir innlitið og kommentin, á árinu sem er að líða.
Svona var nú flott útsýnið í morgun á Möðruvöllum 3
Jæja ég get sagt ykkur að ég er á lífi. Ég er búin að hafa mikið að gera, að minni sögn, núna í desember og þar af leiðandi hef ég ekki skrifað neitt hér inn eins og þið hafði orðið vör við.
Úr fjárhúsunum er það að frétta að við notuðum félagshrút 4. og 5. desember. Það voru 11 sem fengu við honum, en ein gekk upp.
Þetta er Mökkur félagshrútur.
Við létum ekki sæða neina núna.
Við settum hrútana í, 7. desember. Líklegast eru þær allar gengnar. Ég er komin með dagsetningu á öllum nema 15. Það auðveldar vinnu á sauðburði. Sauðburður byrjar 25. apríl og miðað við stöðuna í dag, þá verður hann til 16. maí, í 22 daga.
Í fyrra var hann í nærri tvo mánuði
Þessir gullmolar koma ekki núna um jólin, en vonandi koma þeir í janúar. Sakna þeirra endalaust.
Þessir gullmolar koma og ætla að vera hjá okkur um áramótin, ásamt foreldrum þeirra. Hlakka til að fá að njóta þeirra
Þessir gullmolar eru alltof langt í burtu. Þau koma ekki um jólin, en þau koma til okkar á nýju ári. Hlakka til að sjá þau
Leiðið hans Hugins elsku litla gullsins okkar. Fjölskyldan hans kom með svo fallegan ljósakross núna fyrir jólin.
Damian hress og kátur. Það gengur mjög vel með hann
Guðrún Helga og fjölskylda gáfu mér þennan púða í jólagjöf. Þetta er mynd sem ég tók. Þessi mynd er komin út um allan heim.
Ég fékk líka dagatal frá þeim, með uppáhaldsmyndunum mínum, sem ég hef tekið. Snilldar jólagjöf
Vonandi er síðan mín að lifna við aftur. Ætla að reyna að vera dugleg að skrifa hér inn.
Molinn kveður